NÝ SÍÐA!!!!!!!!
HÆ HÆ SMÁ TILKYNNING HÉR. ÉG ER KOMIN MEÐ NÝJA SÍÐU!!!
http://www.123.is/casper
ALLIR AÐ KÍKKA!!! ÞETTA VERÐUR SÍÐAN MÍN FROM NOW ON!!!
TAKK FYRIR. BABY-BASTARD!!! :D
Mig langar...
Gleðilega Verslunnarmannahelgi allir.
Ég vil minna fólk á nýjan dálk sem slengdist hérna inn fyrir tilviljun hér til hliðar. Ber heitið "Vinkonurnar!!!" Endilega allir að kíkja, þið sem teljið ykkur eiga hlut að máli. Hver veit, kannski leynist smettið á ykkur þarna. He he, nei þið eruð allar yndislegar!! :* :* :*
Jah, þið a.m.k sem eigið frí þessa helgi, segi ég bara til hamingju. Stórfurðulegt samt með þessa helgi. Af hverju heitir hún Verslunnarmannahelgi? Á þetta ekki að vera fríhelgi verslunnarmanna? En það eru einmitt þeir sem þurfa að vinna hvað mest þessa helgi meðan meginþorri landans skemmtir sér fram á rauða nótt.
Nei ég samgleðst þeim. Þetta er ekki alslæmt. Ég þarf ekki að vinna allan daginn, það yrði helvíti. En nú skil ég af hverju 1.maí var fundinn upp. ( frídagur verkalýðsins ) Það var vegna þess að verkalýðurinn var svikinn um Versló.
En já. Margt að gerast um helgina. Austurdalsgangan fer fram og eins og síðast, verða hér á túninu hjá okkur sirka 7 – 10 bílar í geymslu. Það var mjög áhugavert. Leit út eins og við værum algjörir partýpinnar með stórveislu heila helgi.
Nú svo er það vonandi bara FNV í haust. Hef reyndar beðist undan því að verða busuð, hef lent í því áður og eins gaman og það var nú þá, þá er busun once in a lifetime thing. Þú gerir þetta ekki tvisvar. Svo ég ætla bara að standa hjá og hafa gaman af.
Mig er farið að langa á fótboltaleik. For real, mig langar á fótboltaleik!! Alveg sama í hvaða formi, þ.e hvaða lið eru að spila, mig langar bara á fótboltaleik!! Er farin að skipuleggja Englands-förina í hausnum á mér, þá verður sko fótboltaleikur!!!
Annað sem mig langar að gera. Og það er að fara, redda mér einu stykki vatnsheldu kúlutjaldi, kolagrilli, hópi fólks og fara í útilegu. Kannski útihátíð, en samt ekki. Bara eitt stykki útilega, með öllum græjum. Kúlutjaldinu, kolagrillinu, kassagítarnum, rigningunni, seinheppninni og öllum pakkanum. Vá hvað mig langar í þannig.
Og þriðji hlutirinn á stefnuskrá Alþingis. Mig langar í mýrarbolta!!! Hversu oft hef ég tönnlast á því að mig langi vestur, í mýrarbolta? Sullast í drullunni eins og brjálæðingur. Örugglega þvílíkt gott kikk fyrir adrenalínið. En ég get ekki bara fundið bíl og farið vestur. Sumir fengju áfall. Svo ég auglýsi hér með eftir einhverjum sem er tilbúin/n til þess að fara með mér að ári. Of seint núna, en aldrei of seint fyrir næsta ár!
Heyrðu fyrsta vaktin án Lenu var í gær. Og það var EKKI gaman. Manni fannst alltaf eins og það vantaði eitthvað. Það var stórfurðulegt. Maður labbaði fyrir hornið og bjóst við að hitta Surtinn og Lena í góðu stuði, en hvað sér maður þá? Ekki neitt. Enginn Leni!!! Ömurlegt. Eini almennilegi ljósi punkturinn var sá að hitt starfsfólkið var að vanda mjög þægilegt að vinna með, og ég hitti elsku Ínu mína sem átti þarna leið hjá. Stelpan bara flutt norður á Akureyri.
En jæja, hef þetta ekki lengra. Ef einhver sem telur sig þokkalega góðan félagsskap er á leið á fótboltaleik, í kúlutjalda-útilegu eða í mýrarbolti að ári, setjið sig í samband við mig hið fyrsta!!! Adios...











Æ hættum bara þessu rugli - förum og dettum í það!
Að vera eða ekki vera...
Jæja
Verslunnarmannarhelgin nálgast óhuggnalega hratt. Og ég segi svo, þar sem ég verð að vinna þá helgi. Og allir vita hversu mikið heimili Satans, KS Varmahlíð verður um þá helgi. Allir á rjúkandi suðupunkti og starfsfólkið trekkist upp eins og strengjabrúður í of hertu bandi.
Þetta verður áhugaverð helgi. En mér hefur lærst ( sérstaklega eftir þetta atvik með gamla perrann kunningja minn ) að treysta engum á svona dögum. Ekki nokkrum manni sem kemur inn. Ég er orðin mjög tortryggin á fólk.
En ég skil samt ekki, með Íslendinga í dag, hvað allir eru að flýta sér. Ég skil vel, ef fólk hefur mikið að gera, en þarf það að vera með svona mikinn yfirgang og frekju? Það er bara mitt mat. Ætla að leiða slíkt hjá mér þessa versló-helgi, því sárast svíður að komast ekki á Gay Pride vegna vinnu, og þess vegna yrði frekar pirrandi ef fólk færi að traðka á mér af þeim sökum.
Heyrðu svo lenti ég í því í gær að skera mig svona líka laglega á milli tánna. Réttara sagt milli litlu táar og þar á milli. Missti vel stóran glerbrots-bút á það svæði. Og það var VONT!!! Sveið hellings, en spáði ekkert í það fyrr en ég tók eftir alblóðugum fætinum. Og ekki var það alveg að ganga. Svo ég sótti tvo stóra plástra og dundaði mér við að fegra á mér tærnar meir en orðið var. Útkoman varð skrautleg. í meira lagi.
Nú svo fékk ég æðisgóða lýsingu eigin persónu í gegnum síma í gær. Það var ansi merkilegt. Góð vinkona mín hringdi í mig upp á spjallið, og við tókum okkur ágætan tíma í það. Hún sagðist vera farin að æfa sig í að lesa fólk eftir að hún upphvötaði að hún væri skyggn ( fór víst að sjá hitt og þetta ) og eins mikil efasemdarmanneskja og ég er nú, leyfði ég henni að sálgreina mig.
Ég er semsagt hæfilega opin manneskja, með lítið álit á mannskepnunni í dag, frekar óþolimóð, íhugul, með mikið ímyndunarafl, félagslynd, réttlát, vinamörg og vanaföst.
Þetta er nokkuð nálægt. Ég er ágætlega opin, ég hleypi fólki ekki að mér nema ég hafi kynnst því og geti treyst því. Ég hef ekki mikið álit á mannverunni í heild sinni. Ég þoli ekki að bíða. Hvorki eftir fólki né hlutum. Ég vil helst hafa nóg að gera allan daginn, alltaf á hlaupum. Ég get algjörlega dottið ofan í eigin hugsanir, ég er með fáránlega stórkostlegt ímyndunarafl, fljót að eignast vini, hæfilega sanngjörn, á marga vini og rótgrónari en 100 ára gamalt eikartré.
Reyndar pæli ég voða lítið í sjálfri mér svona almennt séð. Finnst jú gaman að spá í réttu og röngu, en svo lengi sem ég er ekki alslæm manneskja er ég sátt. Adios...
Gay Pride í fyrra var sweeeeet :)
Ok, myndum kannski ekki leigja svítuna aftur en samt...
Maður fer ekki á Gay Pride nema með vel völdum hóp af fólki...
Það er alltaf fjör á Gay Pride - sama hvar maður er staddur ;)
Alvöru stemmari, rétt fyrir göngu :D
Alltaf sama fjörið allsstaðar :D
Mig langar á Gay Pride!!! X0
Styttist óðum í England...
Jaajæja.
Ekki bara allt í góðu? Jú jú. Hef bara haft það næs yfir helgina. Engin vinna fyrr en á fimmtudaginn, það er þokkalegt. Við Sigurlaug erum þó sammála um það, að þetta er orðið frekar langdregið. Engin Lena lengur fyrir það fyrsta. Það er stóóóór mínus.
Og svo er þetta bara orðið þreytt. Erum farnar að hlakka til skóla. Væri maður grunnskælingur væri maður sjálfsagt búin að láta athuga sig, hlakka til skóla? En þannig er það nú bara.
Heyrðu það styttist óðum í England. Vona að pleisið verði þornað upp þegar við lendum, annars neyðist maður nú til að draga fram gömlu góðu gúmmerana. En tilhlökkunin er engu minni fyrir það. Vona bara heitt og innilega að ég fái góð sæti í flugvélinni í þetta skiptið, er ekki mikið fyrir að hanga í lausu lofti með líf mitt í höndum ókunnugra. Fékk EKKI góð sæti heim frá Norge fyrir nokkrum vikum, en það er önnur saga.Hversu oft heldur maður upp á afmælið sitt á fótboltaleik í útlandinu með 76.000 afmælisgestum? Já, ég hef glettilega gaman af fótbolta kæru lesendur. Reyndar alveg lygilega gaman. Ég gleymi mér gjörsamlega yfir góðum leikjum, ég fylgist með leikmannakaupum og skiptum, og missi mig yfir lélegum dómum. En vegna þess að ég spila sjálf ekki fótbolta, halda flestir að mér standi slétt á sama.
Svo er nú ekki. Ég hreint og beint ELSKA fótbolta. Kenni frændagarðinum og brósa um. Konni, Rúnar, Fannar og Bjarni endalaust að hrærast í þessu, og svo að sjálfsögðu Gísli Rúnar, Leifur og pabbi svo maður getur ekki annað en flotið með í áhuga.
Svo það er Man.U –Middlesbrough í október. Ætla heldur betur að gerast lítil frekja og nýta mér það að eiga afmæli til að reyna að dobla mér niður í búningsklefa. “Yeah right, gangi þér vel” hugsa margir en ég hef ekki slíka vantrú. Ég hef mörg spil á hendi.
En að öðru. Margir brugðust hart við perraskapnum í þessum blessaða aldursforseta í vinnunni um daginn. Að hann skyldi dirfast. Sure, fær mig til að vera ánægð með afturendann en þetta var nú kannski alveg óþarfi. Ég efast um að náunginn sé héðan, hef a.m.k aldrei séð hann áður. En þið sem sjáið rautt getið alveg farið og leitað hans, svona er Ísland bara orðið. Maður má ekki eiga sitt í friði lengur.
Ég er hins vegar ekkert að stressa mig. Hef sullast í mörgu síðustu daga. Frá því að busa hana elsku Lenu okkar úr vinnunni, og í það að taka stórar ákvarðanir um framtíðina. Ég veit að ég ætla í FNV, en það verður líklegast ekki af fullum krafti, a.m.k ekki svona til að byrja með. Bara einstaka áfangar. Ætla að reyna að vinna eitthvað með, og byrja bara hægt.
En miðað við fyrri U-beygjur lífs míns ætla ég ekki að ákveða neitt lengra. Fannar bróðir er farinn að heimta tölvuna svo ætli maður gefi ekki eftir. I am just to weak. Adios...

Flugvélin sem ferjaði mig heim frá Noregi var sirkabát svona

Andlit manneskju sem hlakkar ætíð til morgundagsins :)
Dundur og dúllerí :)
“Þegar ég var í Nam fór ég með ruslið út 10 sinnum á dag!!!”
Já, ég hef verið í öllu og engu síðustu daga. Líki þessu litla lífi mínu oft við rússíbana, einn daginn er ég með allt á hreinu og þann næsta er allt komið í ruglið.
Tómt vesen. En jæja, búin að hamast í vinnunni síðustu daga. Besta tilfining í heimi þegar ég vaknaði kl: 09:00 í fyrradag, tilbúin að hendast í vinnuna ( í hundfúlu skapi náttúrulega, er EKKI morgunhani ) en áttaði mig fljótlega á því að ég var á seinnipartsvakt og gat því sofið lengur. Og þá var ég nógu vel vöknuð til að geta notið þess í tætlur að kúra mig undir sæng og brosa hringinn. Ætlaði aldrei að hafa mig á lappir þann daginn.
Toppuðum svo kvöldið í gær með að busa Lenuna okkar úr vinnunni. Síðasti dagurinn hennar í dag. Sulluðum saman ýmsu úr útrunnu hillunni ( líklega best að innihaldið haldist top secret svona for Lena’s sake ) drógum svo Lenu út á þvottaplan og áttum góðar og innilegar stundir. Farið var í eggjakast þar sem Lena var skotmarkið, og mikið hlegið og mikið gaman. Alltaf gaman að fokkast svona í fólki, gefur mikið af sér. Alveg nauðsynlegt fyrir bæði líkama og sál.
En Leni ákvað s.s að yfirgefa okkur í dag :’( Óeðlilega mikil eftirsjá eftir henni. Söknum hennar like hell. En það þýðir ekkert að grúfa sig út í horn og skæla, næg eru verkefnin. Ég er orðin bakarameistari B-vaktarinnar. Dúllast í bakstri langt fram eftir degi og er alltaf þokkalega ánægð með sjálfa mig eftir vel unnið verk. Ég ætti bara að stofna eigið bakarí, gæti orðið trilljóneri :D
En það er margt æði skrautlegt sem kemur fyrir í þessari blessuðu vinnu, sérstaklega ef maður er stimpluð lagers-manneskja. Ég varð t.d fyrir minnu fyrstu kynferðislegu áreitni um daginn Ég er að fylla á svalana and just minding my own buisness þegar ég þarf að laga til aftast, fyrir aftan kókómjólkina. Beygi mig fram og finn að það er klipið í rassinn á mér. Hrekk við, hélt að Sigurlaug væri dottin í ruglið. Sný mér við og sé þá hvar miðaldra ókunnugur maður gengur framhjá mér, lítur á mig og segir: "Þú ættir nú ekki að gera þetta svona freistandi fyrir mann eins og mig"
Ég var í miklu sjokki töluvert lengi eftir á. Nefndi þetta ekki við nokkurn mann, eingöngu Sigurlaugu þegar heim var komið, og sat inni á kaffistofu heillengi, fékk að punga út kaffipásu til að ég gæti velt þessu aðeins fyrir mér.Helv***s mannfýlan kemur og grípur um rassinn á mér bara svona upp úr þurru. AF HVERJU???? Langaði að fara fram og löðrunga hann, en vildi ekki eiga á hættu á að hann hreinlega réðist á mig og nauðgaði mér. Svo ég lét það eiga sig.
En fyrir utan þetta litla atvik, er vinnan ekki svo slæm. Í dag vann maður t.d fyrir 5 daga fríinu sínu :D Engin vinna næstu 5 dagar, bara smooth sigling á skýi lífsins. Foreldrarnir farnir vestur á djammerí í Grúnó ( á góðri stund-hátíðin ) og við Fannar bróðir í húsvöktun. Eða ég, hann er orðið aldrei heima, of upptekinn á kvennafari kappinn.
En ég veit svosem ekki hvað skal segja meira. Þetta var nú bara svona inná slengt blogg til að ykkur sem actually skoðið þetta og hafið gaman af, færi nú ekki að leiðast þetta bloggleysi í mér. Ætli ég bloggi ekki næst á pay-day, þá verður mín sko í glimrandi skapi. Adios...
Að hann skuli dirfast...
"Hvurslags bull er þetta?"

Djö*** sem maður er eitthvað úldinn hérna :S
Búin að vera gjörsamlega að sálast úr þreytu í allan dag. Veit ekki af hverju. Kenni því að hluta til um að Sigurlaug sæta frænka sefur ekki kjur, rændi mig þar smá svefn. En ég er bara búin að vera úr sambandi í allan dag. Svakalega hæg eitthvað. Byrjaði á því að brenna mig á bökunarplötu í vinnunni í dag. Tók góðum ráðum úr öllum áttum við því, þrýsti bæði Aloe Vera plöntu og frosnu kjötfars-stykki við fingurinn. Virkaði bæði ágætlega, á sinn hátt.
Lærði að brjóta bjórflösku ( gler ) með höndunum. Já það er ýmislegt skemmtilegt í gangi í mínu lífi, það þarf ekki mikið til að gleðja mig. Og þetta trix var ágætt fyrir adrenalínið, svo ekki sé talað um sjálfstraustið. Að brjóta eitt stykki glerflösku með höndunum án þess að fá svo mikið sem skrámu telst ágætis afrek á mínum mælikvarða.
Svona nokkurn veginn búin að gera upp hug minn varðandi framtíðina. A.m.k út næsta árið. Tek þetta í smáum skömmtum. Ég stefni á að fara í FNV í haust, þ.e.a.s ef einhvern tímann næst á Kela. Held nefnilega að það sé orðið of seint að láta skrá sig, en maður verður bara að krossleggja fingur og vona að almættið standi með manni hérna.
Veit nefnilega ekki alveg. Er ekkert sérstaklega spennt fyrir því að vinna áfram í KS í vetur
( þó peningurinn kæmi sér ágætlega ) því félagsskapurinn verður langt frá því sá sami. Enginn Surtur með sitt: “Hólmfríður has been dead for ten years” með sjúskaðri röddu og uppglenntum augum ( einkahúmor, tilvísun í Friends ) Leni er að fara að yfirgefa okkur eftir viku, lille ljóskan okkar Sif verður ekki í vetur. Ekki Berglind. Og hvað stendur þá eftir, svona þannig séð? Já ég hélt það líka.
Svo nei. Mig langar ekki að vera í KS í vetur. En Skagafjörður, eins ágætur og hann nú er, trónir því miður ekki á toppi atvinnulífsins svo í raun er það bara KS. Eða skóli. Og þá kýs ég nú heldur skóla, svona upp á félagslegheitin að gera. Held líka að það gæti verið ágætt að berja sig áfram í þessu, klára þennan stúdent svo ég geti farið að halda áfram þaðan af. Þetta bara einfaldlega þarf að klárast.
En þetta er ekki alslæmt, þó þessi ákvörðun ( vinna/skóli ) sé að ganga frá mér. Það er England í haust. Réttara sagt á afmælinu mínu. Og mín er sko ekki lítið ánægð með það. Og þetta verða 19 árin, þá á ég tvítugsafmælið eftir í eitthvað annað skemmtilegt :D Já afmælisdagur í faðmi stórum hluta fjölskyldunnar, úti í útlandinu á Manchester-leik er draumur hvers Man-U litaðs hjarta, slíkt er mitt er get ég sagt ykkur.
Nú svo er svaka samkoma á Breiðimýri í Þing-sýslunum næstu helgi. Ætla að reyna að koma mér þangað, hvernig svo sem ég fer að því. Svaka dansiball þar á bæ fram á rauða nótt, mikið líf og fjör og kítlar soldið mikið að fara.
En jæja, ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Er pottþétt að gleyma einhverju en mér er sama. Ætla að fara og nýta síðustu mínúturnar með Eyþór, Þyrí & krökkunum, þau eru búin að vera hjá okkur um helgina. Bara búið að vera nokkuð nett kósý að hafa þau hérna, eins og alltaf. Skellti mér með Eddu bjútí í sund og kvennanna mennirnir Fannar & Haukur við sama heygarðshornið, úti öll kvöld, vaðandi í gellum. Orri snilli búinn að redda mér Word 2007 & DVD-spilara í tölvuna mína svo nú er mín á bleiku skýi. Stóóóórt knús til þín Orri minn :*
Jæja barasta farin, nenni þessu ekki lengur. Læt í mér heyra næst þegar ég finn hjá mér þörf fyrir það. Adios J






Noregur!
Jæja jæja.
Nú er maður orðinn svo djöfulli norskur, er alveg uppþemd af norsku lofti :) Já góðir hálsar. B.B lenti á klakanum síðastliðinn mánudag, eftir vel heppnað flug þvert yfir Atlandshafið.
Flaug út þriðjudaginn 10.júlí með Laugu föðursystur. Áttum að fljúga kl: 08:00 en því var frestað til 11:00. Ekkert við því að gera nema bíða. Það er ekki gaman, eitt af því leiðinlegasta sem ég geri, en hvað gat maður gert?
Flugum loks út. Flugið tók um 2 klst og 20 mín og var einstaklega þægilegt. Ég, eins sjúklega flughrædd og ég er, ( sturlast við minnsta titring ) gat actually náð að njóta flugsins og sofa smá.
Dvölin í Noregi var mjög fín. Hannes, Lotta og krakkarnir voru heima fyrstu tvo dagana og fengum við smá leiðsögn um svæðið. Við áttum nefnilega að fá húsið og bílinn eftir að þau færu til Íslands. Héldum til í Måfaret í Dal, rétt hjá Råholt. Gunna systir Hannesar kíkti á okkur, langt síðan ég hafði séð hana.
Á fimmtudeginum héldu Hannes & co til Íslands, og við Lauga tókum á móti Maridette, finnskri vinkonu Laugu, sem kom alla leið frá Helsinki. Lentum í okkar fyrsta veseni, þegar við fundum ekki handbremsuna á bílnum og urðum að hóa í einhvern gamlan kall rétt hjá til að benda okkur á hana. Það var frekar vandræðalegt, en reddaðist.
En já, þetta var bara frábært. Lentum reyndar í hörku rigningu fyrstu tvo dagana, en það skemmdi ekki fyrir sólardeginum på fredag. Þá skelltum við okkur með lest frá Klofte og alla leið til Osló. Gengum Carl Johansen-götuna þvera og endilanga ( Laugaveg Norðmanna ) Sáum konungshöllina, urðum vitni að lífvarðaskiptum ( dagskrá útaf fyrir sig, bókstaflega! ) sáum Osló University, þjóðleikhúsið og margt fleira.
Það var bara æðislegt. Sáum fullt af götulistamönnum og þetta minnti mig á menninganótt. Sáum reyndar mikið af fíklum og heimilslausum, flestir þeirra utan í manni eins og hræætur, betlandi pening með alls kyns ráðum, en það gerði svosem ekkert til þegar maður lærði að hlaupa hratt og koma sér í burtu frá þeim.
Osló er mjög falleg borg. Kíktum í Vigeland Parken og ég meina það, ef veðrið héldist alltaf eins og það var þarna, gæti ég búið þarna að eilífu. Þessi garður, Vigeland Parken, er fallegasti staður sem ég hef séð á ævi minni. Hefði getað verið þarna það sem eftir væri lífs míns. En við urðum að halda áfram. Eyddum góðum tíma á Aker Brygge, átum á McDonalds utandyra sem var EKKI gáfuleg ákvörðun ( mávar & shit )
Kíktum í siglingu og sáum helstu firði Osló-borgar. Kíkt í búðir og áttum góðan dag. Á laugardeginum skelltum við okkur upp í HolmenKollen og sáum Ólympíu-skíðapallinn fræga. Áttum svo bara góðan sunnudag. Kíktum í Fru Anker í Eidsvoll sem er einhver sögufrægur staður, stolt Norðmanna. Ágætis ferð þangað, mjög flottur staður í góðu veðri.
Svo á mánudagsmorgun mættum við á ókristilegum tíma á flugvöllinn í Osló. Missti því miður af fluginu, en elskulegur náungi reddaði mér flugi með tvö-vélinni ( pottþétt hinsegin, þannig útlits. Eru þeir ekki alltaf bestir? ) Svo ég komst heim, heilu og höldnu.
Helga frænka Halldórs náði í mig á flugvöllinn. ( þakkir fyrir það :)
Og svo tók bara við 3 1/2 tíma skröltandi rútuferð heim í fjörðinn fagra, rútuferð sem ætlaði engan endi að taka. Var orðin frekar pirruð á lokasprettinum. Daginn eftir samlagaðist maður svo bara klikkhausunum á B-vaktinni. Stefnum á að halda kveðjupartý fyrir hana elsku Lenu okkar sem er að fara að stinga okkur af í byrjun ágúst :'(
En jæja, klukkan víst farin frammúr manni enn einu sinni. Ég lofa myndum seint um síðir, það gæti samt orðið soldið í það, þetta system virkar hææægt. Ætla að hætta núna, er komin í 2 daga frí frá vinnu, og Eyþór, Þyrí og krakkarnir ætla að kíkja í helgarheimsókn í Fagrahvolinn, það ætti að vera von á þeim any time now :) Adios...
Old-Boys-landsleikurinn! :D


1 - 0
Sooo.
Síðasta blogg áður en ég held utan. Það er farinn að færast aukinn spenningur í mann, enda ætti það ekki að koma neinum á óvart. Hey’ya Norge í heila viku!!!
Skellti mér á Old-Boys-landsleikinn í gær. Brjáluð stemming maður. Lofa myndum mjööög fljótlega. Mættum fimm mínútur í fjögur í gær, rétt náðum í Byko fyrir lokun. Happatalan 7 ( 07.07.07 ) gerði vart við sig í gær. Fyrir það fyrsta náðum við í Byko fyrir lokun og svo fengum við borð á Greifanum án þess að þurfa að bíða, sem var MJÖG mikil heppni miðað við mannfjöldann.
Já Pollamótið og Essómótið í fullum gangi á Ak í gær svo það var óvenju fjölmennt í þessum annars þægilega bæ. Uppúr 7 lá leið okkar á völlinn. Hittum Gísla, Nínu, Bjarna, Ingimar og litlu snúllu Margréti en þau ætluðu sér líka á leikinn.
Þetta var bara æðislegt í gær. 4000 manns að gleyma sér í hita leiksins. Og þessir gömlu kappar maður. Stuðmenn hituðu upp krádið með gömlum slögurum og minnti Egill fólk á að þetta væru alvöru menn að spila alvöru fótbolta. Menn aldir uppi á lýsi, slátri og hrútspungum. Ekki þessi kókópuffs-kynslóð ( hans orð ) sem ólust upp á súkkulaði og eru núna að skíta á sig á vellinum.
Já það voru orð að sönnu. Þarna horfði maður á hið alvöru íslenska landslið etja kappi við lygeglad Danina. Arnór Guðjónsen, skagfirðingurinn Eyjólfur Sverris, Atli Eðvalds, Pétur Ormslev, Guðni Bergs, Ásgeir Sigurvins, Siguróli “Moli” og allir þessir gömlu.
Skiptingar hjá íslenska liðinu eins og á járnbrautastöð og lýsti Valtýr Björn þessu öllu með stæl. Óteljandi bylgur í brekkunni, hvatningarorð úr stúkunni og þetta var bara dásamlegt. Sérstaklega var það flott þegar Eyjólfur tók skagfirsku sveifluna á þetta og lagði upp mark Molans. Boltinn inni og Íslendingar unnu 1-0 á lokamínútunum. Það ætlaði allt að verða vitlaust.
“Við bjuggum til Jolla” heyrðist endalaust frá Fannari & Bjarna og Valtýr Björn gat ekki leynt gleði sinni. “Það er ekki á hverjum degi sem við vinnum Dani, ekki einu sinni í bingói!!” Ég skemmti mér í það minnsta konunglega og átti góðan dag á Akureyri í gær.
Og svo er það bara Norge á þriðjudaginn. Þarf víst að fara að pakka niður, það er þessi endalausa pressa frá gamla settinu. Þau eru ágæt. En við förum suður seinnipartinn á morgun og svo er það bara flugið. Hvað ætti ég að gera af mér í þessu flugi? Sofa? Lesa? Flugdólgast? Nei ég veit það ekki. Kemur allt í ljós. Ég er farin að pakka...
Vel dúðuð og tilbúin í hörkuleik ;)
Ég og mamma - fótboltaáhugamenn nr.1 :)
Flottustu frændurnir - létu sko í sér heyra á leiknum :)
Sætu foreldrar mínir ;) :*
Ingimar dúlla! - hann var sko með hlutina á hreinu :)
Norge, England & Old Boys



Þannig segirðu frá því Björn!
Baby-Bastard hefur haft í nógu að snúast síðustu daga. Hamast áfram í vinnunni eins og ég get, enda uni ég mér vel á lagernum. Mér finnst gott að vinna fyrir kaupinu, og á lagernum get ég líka unnið á mínum hraða, engin pressa.
En vinnan er ekki allt sem ég hef haft í fullu fangi með undanfarin misseri. Undirbúningur fyrir Noregs-förina komin á fullt. Búin að skipta út slatta af pening yfir í norskan gjaldeyri, myndavélin skyndilega hrokkin í lag ( af engri rökréttri ástæðu! ) og rykið dustað af ferðatöskunum.
Fer suður með pabba og Laugu ( og kannski Fannari brósa ) seinnipart mánudags. Gistum einhversstaðar í Reykjavíkinni og svo fljúgum við Lauga út að morgni þriðjudagsins 10.júlí. Hlakka ekkert smá til. Vika í Norge! :D
Nú svo kom skemmtileg frétt upp síðla dags í gær. Ég var í rólegheitum að dunda mér inni á lager þegar Surturinn ( Sigurlaug ) kemur skokkandi til mín með bros á vör. "Konni reddaði 12 miðum á Man.U - Middlesborugh í okt" segir hún mér.
Já. Það er ekkert annað. Var soldið lengi að átta mig á þessu. Ég meina, ég veit það stóð til að fara á Man.U-leik en ég hélt að það væri bara fjarstæðukenndur draumur og innantómt tal. Þangað til í gærkvöldi. Og nú er búið að senda inn staðfestingu og hópnum lokað. Við erum á leiðinni á Old Trafford!!!!
Lendum að öllum líkindum í Glasgow og tökum þaðan rútu til Manchester þar sem við munum eyða þremur nóttum. Fararhópinn skipa: "Ég, mamma, pabbi, Fannar bróðir, Leifur, Anna María, Konni, Sigurlaug, Lauga, Rúnar, Gísli, Nína og Bjarni" Þetta verður æææðisleg ferð, ekki bara fyrir það að stór hluti fjölskyldunnar fer, heldur líka vegna þess að þetta hittir á svo skemmtilegan dag. Leikurinn sjálfur fer fram á 19.ára afmælisdaginn minn, 27.október :D
Mín ekki lítið ánægð. Vafalaust besta afmælisgjöf ever!!! Að ekki sé talað um besta afmælisdag sem ég mun líklegast upplifa!!!
Annað sem kítlar, og það er að skella sér á svokallaðan "Old-Boys"-fótboltaleik á Ak á morgun. Veit að pabbi og Fannar brósi ætla og líklegast Bjarni Smári. Kannski að maður skelli sér með. Ég meina, hversu mörg tækifæri fær maður til að bera goðsögnina Peter Schmekle ( to hell með stafsetninguna ) augum?
Já hann mun standa milli stanganna og fleiri goðsagnarkenndar fótboltafígúrur munu prýða völlinn svo þetta er aaafar freistandi að láta sjá sig þarna. Jú veistu ég held ég fari bara. Fótboltinn heltekur líf mitt um þessar mundir. I love it!!!
Þannig að það er bara allt að gerast. Tvær utanlandsferðir á stuttum tíma. Nú svo er ég að reyna að ákveða hvað tekur við að sumrinu loknu. Ætti ég að fara í FNV? Eða ætti ég að halda áfram að vinna? Eða get ég gert bæði? Unnið kannski í Hlíðó á kvöldin og um helgar? Hvað ætti ég að gera?
Enginn tími til að spá í það núna. Ég þarf í sturtu, svo þarf ég að pakka niður, svo þarf ég að skjótast niður í KS til að dobla vaktaskipti, svo þarf ég að....já nei. Stopp nú. Farin. Adios...







SHIBBÝ!!!!! :D :D :D
Well...
Í þessum töluðu orðum er klukkan að ganga hálfsex, mánudaginn 2.júlí og ég hef enn ekki fengið útborgað sem er svolítið svekkjandi. En miklu meira bara pirrandi. Sigurlaug sæta er búin að fá sín laun en enn sem komið er, hækkar mín upphæð ekki neitt.
Ókey, gef þessu séns fram á morgundaginn. Þá neita ég að bíða lengur. Ef ekkert verður komið inn á morgun fer ég í mál við einhvern og sýni klærnar.
En til að dreifa huganum aðeins. Rebekka rúsína hringdi í hádeginu og deildi með mér þeirri skyndiákvörðun sinni að drífa sig bara í útilegu einhversstaðar nálægt Ak. Bauð mér með að sjálfsögðu og er von á henni hvað úr hverju. Ætlum að leggja af stað í kvöld. Vá hvað ég elska svona skyndihugdettur. Engin hugsun að baki, ekkert vesen, endalaust þras og tímapælingar. Bara pakka niður og fara. Ég gjörsamlega elska svoleiðis.
Vinna og aftur vinna. Velti því fyrir mér hvort ég ætti ekki bara að binda mig niður á kassann því ég afgreiddi, stóð upp, hélt áfram því sem ég var að gera, en var strax send aftur á kassann vegna þess að það átti að hafa myndast biðröð ( í sumum tilfellum var jú biðröð en oftast voru þetta bara sirka 2 – 3 manneskjur með 2 – 3 hluti hver, snöggafgreitt )
Styttist óðum í Noreg. Fer suður næsta mánudag. Get barasta bara ekki beðið. Hversu sweet verður það, með stútfullt seðlaveskið að ráfa um helstu verslunargötur Osló-borgar, kannski pöbbarölt og bara bullandi stemming. Og já mamma ég fer sparlega með peningana. Mun ekki spreða í einhverja vitleysu hægri vinstri.
Fannar bróðir nýkominn heim, austan að Egilsstöðum. Kom í gær. Kjellinn búinn að vera að brillera með keppnisþyrstum og sigur-hungruðum liðsfélögum sínum í Tindastól og enduðu leikirnir ( að mig minnir ) 2-2 ( Fannar skoraði annað mark Tindastóls, þó hann sé aftastur í vörninni, sweaperinn ) og svo 3-2 fyrir Tindastól ( Fannar aftur með eitt mark )
Þannig að það var stolt stóra systir sem tók á móti honum í KS í gærkvöldi. Annars er lífið bara í föstum skorðum hvað mig varðar. Fyrir utan þessa útilegu okkar Rebekku og Noregs-ferðina eftir sirka viku, sé ég fram á bara vinnu og aftur vinnu. Það bjargar því gjörsamlega og algjörlega að vera að vinna með skemmtilegu fólki og þá sérstaklega Sigurlaugu og Lenu.
Þær tvær eru bara snillingar af guðs náð. Þær eru svo alveg eins, þvílíkir klikkhausar í grillinu. Held að Sigurlaug ætli að draga Lenu með sér á Húnaviku, ball með Í Svörtum Fötum á Skagaströnd þegar Sindrinn hennar verður kominn heim af Hróaskeldu.
Því miður á ég ekki mynd af þessum tveim ó svo mjög snarrugluðu æðibitum til að skella hér inn svo ég hendi bara inn nokkrum myndum af okkur Sigurlaugu í kasti, sem gerist orðið reglulega sem er bara gott mál. Sigurlaug mín, vona að þér sé sama þó ég setji þessar myndir inn, láttu mig annars bara vita.
Ég skal sko segja ykkur, að það kryddar helling upp á tilveruna að þekkja Sigurlaugu, manni leiðist aldrei og maðurveit aldrei við hverju má búast af henni, hún er svo óútreiknanleg. Knús Sigurlaug!!! :* :* :* Læt þetta duga í bili. Adios...





